vitleysa....

Bið lesendur mína afsökunar á bloggleysinu og hef svosem enga tæmandi afsökun fyrir því nema hugsanlega frásagnarþurrð og fyrirtíðaspennu. Það teljast mögulega gildar afsakanir þó deila megi um hversu réttmætar þær séu.
Úr einkalífinu er fátt krassandi frásagna; hef hvorki skipt um kynhneigð né fengið mér hjásvæfu en hvorutveggja hefur verið ámálgað við mig í orði síðan ég bloggaði síðast. Ég tók þetta að sjálfsögðu til mín og hef ígrundað vel þessar athugasemdir en tel mig að svo stöddu ekki þurfa að gera neitt frekar grein fyrir þeim. Hinsvegar viðurkenni ég að hafa þó nokkuð oft tvíkynhneigðar skoðanir sem ég hef áður reifað á þessari síðu. Engu að síður þakka ég umhyggjusemi fyrir mínum meinta “samlífisskorti” og segi einfaldlega mænd your own bisnesss...
Haustið hefur alltaf verið fyrir mér ákveðinn endurskoðunartími- þá fer maður yfir stöðuna, metur einhverja kosti og gerir einhver plön um framhaldið. Síðustu misseri hefur það að nokkru leiti verið samofið náminu mínu og þá verið skilmerkilega uppsett hvenær næsta próf, ritgerð eða verkefnaskil væru framundan. Núna þetta haustið hefur það ekki tekist og þrátt fyrir að ætla mér að leggja stund á þrjá áfanga hef ég ekki getað komist í gírinn ennþá. Er semsagt alveg óheyrilega kærulaus og hrokafull hvað varðar námsþáttinn.
Vinnan mín er sem aldrei fyrr full af forvitnilegum uppákomum og ýmsum mannlegum snertiflötum sem gaman væri að tíunda í skrifuðu máli. Hinsvegar er það ekki gerlegt.
Til þess að draga saman líðan mína þessa dagana verða því nokkur stikkorð að nægja...
Mér líður eins og :
• Flæktu jólaskrauti
• Hvítvínsflösku án hvítvíns
• Klístruðum ís á jakkafötum
• Dagblaðinu frá því í gær
• Óhollu nammi...
í guðs friði, Sigga


2 Comments:
Hæ Sigga skólastelpa. Takk fyrir kvittið skan...þú ert algjör snilli;o)
Hæ Sigga mín,
er ekki nógu sátt við þetta bloggleysi. Við í Reykjavík verðum að fá að fylgjast með ;)
Kveðja,
Ástrí
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home