...nýjasta nýtt
Var búin að gera skelfilega djúpa og tilþrifamikla færslu sem ekki seifaðist- skrambans; svo hér kemur stutt útgáfa! Dagarnir frussast áfram og kósýheitin eru algerlega yfirnáttúruleg þegar forsvaranleg birtuskilyrði skapast fyrir kertaljós og rökkvaða birtu á kvöldin. Ekki skemmir fallegt sólarlag fyrir og líflegur félagskapur. Er búin að upplifa ófáar gæðastundirnar síðustu vikurnar. Ég hef hlúkast að Súlutindum, sýnt fádæma tilþrif í stafgöngu, matarboð, kaffihúsaferðir, ærlegt spjall fram eftir nóttu, spilamennska svo fátt eitt sé nefnt. Best við þetta allt saman er náttúrulega að eiga góða vini. Lífið væri ósköp fátæklegt án góðra vina. Nú styttist í að ormarnir komi aftur heim og mikið verður nú ljúft að knúsast með þeim, vakna upp við það að einhver sparkar óvart í mann á nóttunni eða vakna að morgni í kuðli á rúmbrýkinni! Eða takast á við síðdegissuð, þriðjudagsþreytu eða fjögurra ára frekju! Já fjarlægin gerir fjöllin blá.


3 Comments:
Hehe.. enginn blótar eins og´þú :) quote: skrambans.. bara fyndin :)
Já það er gaman að heyra að þú hafir það gott ;)
hlakka til að sjá þig næst.. hvenær sem það nú verður
með kveðju,
liljarós
Þú ert svo mikið yndi Sigga. 1 flokks yndi:o)
Gaman að „koma í heimsókn” og takk fyrir mig:o)
sæl Sigga!
þakka "innlitið" um daginn...
biðst afsökunar á að halda uppi svona rafrænum samskiptum, vonandi getum við bætt úr því og tekið spekingaspjall við tækifæri.
(veit þó upp á mig skömmina, klikkaði alveg á því að heyra í þér um daginn, svona fara þessar "blessuðu" næturvaktir með mann, er einmitt í þessum skrifuðu orðum á einni slíkri...)
kv. Kristján.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home