10.7.06

kveðja




enn er hjarta mitt tregaþungt; Sigrún mín- óskiljanlegt að líf þitt skuli ekki hafa orðið lengra en þetta, þú átt eitt bjartasta og geislandi bros sem ég hef nokkurn tímann séð.





Kæra vina

Þei, þei og ró
þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó
sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg,
værðar þú njóta skalt.
Þei, þei og ró
þögn breiðist yfir allt.

enn uppdeit

Sælt veri fólkið, héðan af bæ er harla fátt í fréttum. Ég eyði mínum tíma mest í vinnunni og reyni að hafa eins mikið að gera og mér er framast kostur. Þar sem ég má ekkert segja þaðan þá er það eiginlega borðleggjandi að ég hef fátt að segja. Úr einkalífinu er fátt um fína drætti. Nema það var jú dregin úr mér barnatönn í vikunni! Hafið þið heyrt annað eins og það sem er enn betra – það kemur enginn fullorðinstönn. Ég þarf því mögulega að eyða einhverjum þúsundköllum í fullorðinstönn. Hef sofið mikið um helgina, horft á videó og eitthvað reynt að hreyfa skrokkinn. Á þriðjudag verður væntanlega brunað í sveitina á fjölskyldusamkomu. Náttborið þessa dagana er þakið lesefni um allt milli fátækrar á Íslandi,vímuefnafíknar og dulmála í Íslandssögunni. Afar skemmtilegur kokteill ásamt einni svona ofurkonubók sem heitir Móðir í hjáverkum. Ágætis lesning um súpermömmur út í hinum stóra heimi verðbréfa og vístölu. Annars alveg makalaust merkilegt hvað vísitölur, vertryggingar, lánasúpur og Intrum miðar, ásamt endalausum útreikningum á sjúkradagpeningum og allskonar lífeyri getur fyllt daginn miklum eldmóði. Ég get nú sennilega seint talist einhver töluspekingur en mín fjármál hafa öðlast allt aðrar hæðir eftir að ég byrjaði í vinnunni minni auk þess sem hor í nös og síðdegisfrekja hafa núna annan samhljóm í sálartetrinu á mér....

Yfir og út...