uppdeit
Já vindarnir hafa blásið rólega í lífinu hérna í Klettastígnum, þannig að það endurspeglast að einhverju leiti í bloggleysi. Hvað um það, tíminn flýgur samt áfram og allt í einu siglir Júlí mánuður hraðbyri upp Eyjafjörðinn. Það var ánægjulegt að útskrifast sem bakkalár (hafið þið heyrt annað eins!) úr háskólanum- loksins! Ég er skráð í 4. fög í háskólanum næsta vetur; eiginlega er hvert þessara faga kennt í hinni og þessari deildinni þannig að ég telst því vera svona lausaleikskrógi í Félagsvísindum á næstkomandi önn! Því verður að púsla inn í 100% vinnu og barnauppeldi. Þannig að nöldurtuggan tengt streitu, skóla og ofurkonustælum mun að öllum líkindum hefja aftur göngu sína svona c.a. með haustinu. En ég tek mér orð Bubba í munn þessa dagana og söngla “sumarið er tíminn” og reyni að henda reiður á og skipuleggja allt það sem ég “ætla að gera” sem nær í skrifuðum orðafjölda u.þ.b. einu sinni hringinn í kringum landið. Núna um helgina fór ég m.a. í góða menningar og vinaferð til vinkonu minnar austur á héraði. Reyndar kem ég þaðan skaðbrennd og minnandi frekar á sólþurrkaðan tómat heldur en frækinn og forframaðan ferðalang, en mér er alveg sama. Þetta var alveg rosalega andlega nærandi og ánægjuleg ferð í alla staði. Næsta vika verður svo tekin með trompi í móðurhlutverkinu og skemmtilegheitum með gaurunum mínum, því þeir fara svo í burtu í mánuð eftir næstu helgi. Það er einmitt þá sem “to do” listinn þéttist áþreifanlega mikið, því síðust tvö sumur sem þeir hafa farið svona burtu hef ég lagst í eintóma eymd og volæði og ekki nýtt tímann til neins sem uppbyggjandi telst vera. SVO nú á að gera bragarbót á því ! útilegur, vinaheimsóknir, fjallgöngur og fræðalestur hafa því verið settar efst á þessum langa lista, ásamt einhverjum leiðinlegum skildu verkefnum sem ég nenni ekki að tíunda hér. Ég er samt kvíðin í hjartanu, því gaurarnir mínir eru það stór þáttur af mínu lífi og eiginlega LÍF mitt í orðsins fyllstu merkingu, þannig að ég verð að taka þessum skrítna tíma án þeirra af yfirvegaðri meðvitund um að gera sjálfir mér gott!

