Jæjaðð mikla á enda runnið...

Jæjaað er búið í bili. Ég fékk svei (=nei) frá Háskóla Íslands ásmat tveimur öðrum samnemendum mínum úr BA. náminu. Það komst því enginn af okkur þremur inn í menntaelítuna í Háskóla Íslands þetta árið. Ég ætla ekki að leyna því að vonbrigðin urðu þó nokkuð sterk og almenn geðlæg leyndi sér ekki fyrst á eftir enda er maður búinn að vera í bið, eftir þessu síðan lokaritgerðinni lauk. Líf mitt fór í eitt allsherjaruppnám í u.þ.b. sólarhring eftir að þessar leiðindafréttir bárust hingað norður, þar á meðal kom stóri efasemdarpakkinn um allt sem ég hef gert hingað til og skelfilegir hugarórar um hrakfarir lokaritgerðarinnar minnar! Já maður er eiginlega ekki alveg með öllum mjalla. Núna hefur viðbragðáætlun B tekið við og kem ég því til með að byrja að vinna á föstudaginn og stefni á að taka fleiri fög í Háskólanum næsta vetur. Sjáum svo til hvort ég sæki um aftur næsta vor.


0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home