í dag

Hef farið góðan blogghring og sé að mikil og almenn tilvistarkreppa ríkir í BA. skrifum samnemenda minna. Ég er engin undantekning á því. Heilsutengd lífsgæði mín eru allavega verulega skert þessa dagana. Langar að koma með miklar og fjálglegar lýsingar á ástandinu á þessu heimili en ætla að sleppa því í bili.
Ég saknaði strákanna minna í dag
Ég keypti bók í dag-
hún kostaði álíka mikið og matarinnkaup í eina viku, ég legg því af í næstu viku eða fæ ristilstíflu því ég þarf að borða bók.
Ég fór í vinnuna í dag
Ég vígbjóst stafgöngustöfunum mínum í dag og spólaði hálfa Akureyri á enda
Ég hugsaði um BA verkefnið mitt í dag
Ég boraði í nefið í dag...


1 Comments:
What a great site, how do you build such a cool site, its excellent.
»
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home