Snýst þetta allt um peninga?
Það er nú ekki alltaf innihaldsdjúpt sem ég hef tamið mér að skrifa hér á bloggið mitt, enda er mér yfirleitt nokk sama um það, bloggið er frekar mín “listræna útrás” í lífinu.
Hér kemur ein slík:
Í dag var leikinn einn stærsti farsinn í Íslenskri réttarsögu þegar vitnaleiðslum lauk yfir Íslenskum “Jóni” og öðrum Kanadískum með það óheppilega eftirnafn “Motta”. Samkvæmt öllu átti heildar vitnaleiðslunum að ljúka í dag en svo virðist sem þetta leikrit verði leikið öllu lengur. Nú hef ég ekkert vit á lögfræðilegum álitaefnum eða neinu sem yfirleitt snýr að lögfræði en þegar svona krassandi mál eru í samfélagsumræðunni þá hlýtur maður að spyrja sig spurninga sem snúast um mannleg samskipti og almennt siðferði. Málskjölin í Baugsmálinu eru kominn í sér hillu inn í réttarsalnum sem er hátt í tveir metrar á hæð! Hvernig eiga venjulegir samfélagsþegnar að geta botnað í þessari hringavitleysu sem hefur verið snúið upp í “stóra vonda ríkisskrímslið” gegn “Hróa hetti” sem er svo góður við almúgann að gera út gular svínaverslanir um allar trissur ( p.s. ég; almúginn tek ölmusuna sem að mér er rétt og spássera með gulleita innkaupapoka vikulega!)
Sennilega lýsir viðhorf mitt sér í andlegum fordómum eða hreinni vanþekkingu þegar ég get ekki skilið til hvers það þarf allar þessar lagaflækjur? Og hvert var nú upphaflega málið?
Peningar, öfund og græðgi eru að verða eins og samvaxnir þríburar í taumlausu siðleysis sukki sem enginn sér fyrir endann á. Allt er falt fyrir rétta upphæð, allt frá feitum starfslokasamningum til Sinfóníutónleika þar sem borga þarf sérstaklega undir aðalstjörnuna af bankastofnun sem bíður svo “elítunni” að vera með í sóló!
Þrátt fyrir allar þessar dásemdir bryðjum við ritalín sem aldrei fyrr og fréttir um kynferðislega valdbeitingu, hrottafengið ofbeldi og fíkniefnamál eru að verða eins fastir liðir í fréttum eiginlega eins og meirihluti Fréttablaðsins er orðin fasteignaauglýsingar og “aukablöð” um alls kyns drasl.
Alveg eins og peningar geta verið völd í höndum þeirra sem kunna að skylmast með þeim vopnum, getur fjársvelti líka verið valdbeiting. Þessi valdbeiting er ekki ósvipuð sultarólum menntamálastefnunnar á Íslandi yfir þeim þúsundum nema sem fjárfesta með námi sínu í framtíðinni. Í ræðu og riti er orðræðan hástemmd; "rannsóknir, metnaðarfullt, alþjóðlegt og framsækið nám, og gæðastaðlar" eru menntavegsboðskapurinn til háskóla þessa lands. Er þessi boðskapur einhvern tímann samrýmanlegur sultarólum fjárveitingarvaldsins? góð fjáfesting? snýst þetta allt um peninga?....


0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home