21.2.06

Snýst þetta allt um peninga?

Það er nú ekki alltaf innihaldsdjúpt sem ég hef tamið mér að skrifa hér á bloggið mitt, enda er mér yfirleitt nokk sama um það, bloggið er frekar mín “listræna útrás” í lífinu.
Hér kemur ein slík:

Í dag var leikinn einn stærsti farsinn í Íslenskri réttarsögu þegar vitnaleiðslum lauk yfir Íslenskum “Jóni” og öðrum Kanadískum með það óheppilega eftirnafn “Motta”. Samkvæmt öllu átti heildar vitnaleiðslunum að ljúka í dag en svo virðist sem þetta leikrit verði leikið öllu lengur. Nú hef ég ekkert vit á lögfræðilegum álitaefnum eða neinu sem yfirleitt snýr að lögfræði en þegar svona krassandi mál eru í samfélagsumræðunni þá hlýtur maður að spyrja sig spurninga sem snúast um mannleg samskipti og almennt siðferði. Málskjölin í Baugsmálinu eru kominn í sér hillu inn í réttarsalnum sem er hátt í tveir metrar á hæð! Hvernig eiga venjulegir samfélagsþegnar að geta botnað í þessari hringavitleysu sem hefur verið snúið upp í “stóra vonda ríkisskrímslið” gegn “Hróa hetti” sem er svo góður við almúgann að gera út gular svínaverslanir um allar trissur ( p.s. ég; almúginn tek ölmusuna sem að mér er rétt og spássera með gulleita innkaupapoka vikulega!)

Sennilega lýsir viðhorf mitt sér í andlegum fordómum eða hreinni vanþekkingu þegar ég get ekki skilið til hvers það þarf allar þessar lagaflækjur? Og hvert var nú upphaflega málið?
Peningar, öfund og græðgi eru að verða eins og samvaxnir þríburar í taumlausu siðleysis sukki sem enginn sér fyrir endann á. Allt er falt fyrir rétta upphæð, allt frá feitum starfslokasamningum til Sinfóníutónleika þar sem borga þarf sérstaklega undir aðalstjörnuna af bankastofnun sem bíður svo “elítunni” að vera með í sóló!
Þrátt fyrir allar þessar dásemdir bryðjum við ritalín sem aldrei fyrr og fréttir um kynferðislega valdbeitingu, hrottafengið ofbeldi og fíkniefnamál eru að verða eins fastir liðir í fréttum eiginlega eins og meirihluti Fréttablaðsins er orðin fasteignaauglýsingar og “aukablöð” um alls kyns drasl.

Alveg eins og peningar geta verið völd í höndum þeirra sem kunna að skylmast með þeim vopnum, getur fjársvelti líka verið valdbeiting. Þessi valdbeiting er ekki ósvipuð sultarólum menntamálastefnunnar á Íslandi yfir þeim þúsundum nema sem fjárfesta með námi sínu í framtíðinni. Í ræðu og riti er orðræðan hástemmd; "rannsóknir, metnaðarfullt, alþjóðlegt og framsækið nám, og gæðastaðlar" eru menntavegsboðskapurinn til háskóla þessa lands. Er þessi boðskapur einhvern tímann samrýmanlegur sultarólum fjárveitingarvaldsins? góð fjáfesting? snýst þetta allt um peninga?....

6.2.06

hjámmss vikunnar


Átti snilldarhelgi í borg óttans, við fræðastörf og góðra vina gleðskap. Mátaði mig á háskólasvæðinu og lék túrista í Kringlunni! Fór í kósýheit og hífandi rok og rigningu fyrir austan fjall, merkilegt að í umræðunni um fjórar akreinar yfir Hellisheiði skuli enginn minnast á einhverskonar þokumyllur sem héldu frá þoku og súld og beindu því aftur á haf út eða inn á hálendið! Átti þroskandi og djúpar samræður við skemmtilega og gamla vini og tók hringinn á Kaffibrennslunni, Cirkus og Ölstofunni með ástkærri systur minni til að komst að því að þar eru hlutirnir ekki öðruvísi en venjulega, reykmettað loft og drukkið fólk, sem í sjálfu sér er líka í lagi ef maður sækist virkilega eftir því ásamt fylgisveinum úr timbri daginn eftir. Svona stundir eru nú líka alveg ágætar, ég var í góðum félagsskap svo það er það sem málið snýst um. Timburkallarnir eru nú ekki í fastri vinnu hjá mér svo þeir eru þolanlegir af og til! Annars eru nú engir iðnaðarmenn í vinnu á þessu heimili, nema þá uppgjafar smiður í líki Íþróttaálfsins sem heldur okkur í heljargreipum með mánaðarlöngu orkumaraþoni. Hér eru semsagt mældar fæðutegundir og haldið nákvæmt bókhald með límmiðum, stöðugar æfingar ásamt vatnsþambi og álfastökk um alla íbúð. Þar sem vistarverurnar bjóða nú ekki upp á mikið hreyfirými geta bæði líf og limir verið í stórhættu meðan hæst stendur. Enginn hefur slasað sig hingað til en ein ástæða þess er nú kannski sú að ég hef harðneitað að taka orkustökkið (sem er splitt upp frá gólfi í einu stökki!) en held mig við að foreldrar þurfi að nota orkuslökun þess í stað til að virkja orkuna inn á við. En engu að síður er maður algerlega meðvirkur í þessum og það er bara vel. Boðskapurinn skiptir máli og antisportistinn í mér er á hröðu undanhaldi!!
kv, Sigga stirða

2.2.06

Þrálátar þenkjur!





lítil, lúin og lurkum er lamin
hamingjusólin er gengin til viðar
hvernig má hugsunin sú vera hamin
skást er að ýt´enni allri til hliðar

er á leið í borg óttans, tek rispu austur fyrir fjall og kem vonandi heil heim á sunnudag. Blóm og borðar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja hitta á mig í borginni vinsamlega látið mig vita í tíma.