8.1.06

Gleðilegt ár fólk mitt gott

Ætla að henda inn fyrstu færslu ársins, allavega áður en hneyfaður verður þorramatur og slurpað niður með svo tilgerðum mjöð. Hef átt afskaplega letilegan mánuð. Ég nenni nú ekki einu sinni að taka niður jólaskrautið og hef því ákveðið að láta það hanga aðeins lengur og þegar líður á gormánuð mun ég spreyja skrautið gult í tilefni páskanna. Eftir að ég útskrifast flyt ég væntanlega héðan svo ég hef ákveðið að láta bara skrautið fylgja íbúðinni með von um að ég fá tryggingargjald FÉSTA til baka með fullum ávöxtunar kröfum mínum! Ykkur að segja er ég finnst mér áramótaheit klisjukennd og allt þetta kjaftæði um að líta yfir farin veg, fer ekki alltaf fara vel í mann, þannig að nóg er fyrir mig að líta niður á brjóstin á mér þá sé ég að þau hafa sigið svo það hlýtur að hafa liðið enn eitt árið eftir því að dæma! En eins og ég segi og stend við það að fortíðin er saga og framtíðin er gjöf, þannig að gjöf framtíðarinnar væri þá bara brjóstalyfting fyrir bommana mína!!
Já, ég er svona aldeilis jákvæð í byrjun árs sem ég efa ekki að verði alveg fantafínt ár; með nýjum og spennandi tækifærum, meiri dramatík, tilfinningum með dassi af skynsemi í bland við alla vitleysuna sem manni dettur stundum í huga að gera og ef um allt þrýtur þá má reyna starfslokasamning. Þeir ku vera það heitasta í dag og gefa mest í aðra hönd !!!!

Kveðja úr brjóstsýnislandi frá verðandi BA-ista í sálfræði
(nýtt fræðiheiti fyrir þetta og er borið fram baaaasista í sálfræði).

1 Comments:

At 1/09/2006 9:57 PM , Anonymous Anonymous said...

Hef einmitt verið að velta þessu fyrir mér því oftar en ekki fær maður þá spurningu í fésið "hvað ertu svo orðin þegar þú útskrifast"? uhhhhhh ekki neitt....bara með BA-próf!!! Eins og það sé eitthvað BARA...get ekki sagt að þetta hafi verið eins og að drekka vatn..ó nei:) En jæja er hætt að tuða...sjáumst í skólanum von bráðar!

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home