1.12.05

sálar frétt 6

Nokkurrar ritstíflu hefur gætt á stældum og stolnum lýsingum á samnemendum mínum. Ástæðurnar eru margar og vitna ég einungis í síðustu skrif mín hér á bloggin máli mínu til stuðning. Hvað um það, þessa dagana einkennist málefnakrúð mitt af því að...”mín persónulega skoðun er “, svolítið frasakennt og einnig koma fyrir orðin áhugavert, mögulega, hugsanlega, áreiðanleiki og tilfinningagildishlaðið. Ekki spyrja mig af hverju?

Ætla að reyna bæta fyrir böl mitt og henda hérna inn nokkrum illa lyktandi línum og næsta fórnarlamb mitt. Það má nú samt sennilega seint segja að sá einstaklingur sé eitthvað illa lyktandi síður en svo. Hún er alveg einstaklega ilmandi sú góða kona. Frá fyrstu stundu hef ég haldið því fram og trúað statt og stöðugt á það að þessi kona eigi eftir að gera óhefðbundna hluti í lífinu og það að hún sjái lengra en nefi sínu nær. Frá fyrstu stundu hefur hún líka sýnt að hún hefur beinin í nefinu nákvæmlega þar sem þau eiga að vera. Ef ykkur rennir ekki grun í hvern ég er að skrifa um leggið þá augun aftur og hugsið um eitthvað í svörtum fötum! Er nú reyndar sannfærð um að stælisti hljómsveitarinnar í Svörtum fötum hafi stolið hugmyndafræði þessarar ágætu konu. Allavega er nafnið stolið úr outfittinu hennar Valeyjar en hún fær þann vafasama heiður að vera sjötta fórnarlambið hérna, reyndar hefði hún MÖGULEGA átt að vera númer sjö í röðinni því hún hefur eitthvað svona sjöunda skilningarvit þegar kemur að áhugamálum sínum. Þau eru einna helst þau að drekka dæet kók, reykja, viðra hundana sína, knúsa hann Hjalta sinn og ekki síðast en síst að skrifa summary. Reyndar hvíslaði að mér lítill fugl að þegar að komi að því að þau Hjalti gangi í heilagt hjónaband verði eftirnöfnum þeirra breytt í Summary. Hjalti mun hafa samþykkt það í skiptum fyrir að endurheimta konu sína frá námbókum og losna undan því að vera “daddy daycare”. Í vetur hefur Valey af röggsemi stjórnað umræðutímum í öðrum bekk með ekki minna snillingi en henni Jóu en þar munu hafa sameinast í eitt stálið og sleggjan þannig að annar bekkur hefur ekki átt sjö dagana sæla, en svo er líka svolítið erfitt að vera “insane in sane pleises” (Summary et. al,2005). Auk þess mun Valey vera að gefa út metsölubókina "Myrkur í undirheimim Eyjafjarðar" sem er afrakstur þriggja ára rannsóknarvinnu hennar við háskólann. Mun þetta vera fyrsta bók sinnar tegundar og er næsta víst að hún skila sér sterkt inn í jólabókarflóðið. Án efa mun Valey fara hamförum á vettvangi dulsálarfræði en það er hennar sérsvið og lýsir henni einna best með formúlunni D/3 = dularfull,dramatísk og dásamleg.

Í dag fær Valey bakklappið mitt.....

3 Comments:

At 12/01/2005 8:27 PM , Anonymous Anonymous said...

Þakka þér lofsamlega fyrir Sigga mín, þessa greinagóðu lýsingu. Hefði ekki getað orðað þetta betur (mögulega styttra (summary)en ekki betur). Það hafa verið forréttindi að fá að vinna með þér að verkefni undanfarna mánuði. Mér finnst bara synd að hafa ekki upplifað það fyrr á skólagöngunni...
Haltu áfram góðu verki og þó tilfinningarnar hlaupi með þig í gönur þá er ekki hundur í hetttunni.

 
At 12/01/2005 9:03 PM , Anonymous Anonymous said...

hahah, þakka hlýjar kveðjur í minn garð. Þú mátt vita að hjörtu okkar slá í takt með verkefnavinnuna. Ég mun halda ótrauð áfram að "fá eitthvað á tilfinninguna" og láta" um leið tilfiningarnar hlaupa með mig í gönur" alla lífleiðina!
kv,Sigga

 
At 12/01/2005 10:36 PM , Anonymous Anonymous said...

Hey
þið þarna tilfinningaverur!!

Þið spjallið svo bara við okkur spænskukennarana ef þið eruð á leiðinni út og þá sérstaklega ef þið ætlið að stoppa við í dýragarði.....

Kv. Berglind spanjóli

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home