12.12.05

Akademískt viðrini

Ég er akademískt viðrini. Ég er ekki búin að vera laus frá skólaklafanum í meira en þrjá daga og ég er alveg ómöguleg. Ég hef ekki fengið eitt auka hjartaslag yfir óloknum skólaverkefnum og er eiginlega að fara að taka auka slag vegna þess. Ég hef ekki farið upp í skóla í þrjá heila daga! Ég hef ekki opnað eina sálfræðibók allan þennan tíma, ekki lesið eina rannsóknargrein eða reytt hár mitt yfir illskiljanlegum heimspekilegum pælingum tengt hugfræði. Ég er eiginlega eins aumkunarverð sem hugsast getur, ég nærist sennilega á því að hafa allt of mikið að gera og vera með spennuþröskuldinn stilltan á sem hæsta tíðni. Ég er meira segja orðin eins og gamla fólkið, vakna alltaf kl 6:30 og get ekki sofið lengur, reyndar svaf ég til 7:30 í morgun þannig að kannski lagst þetta en comm on þetta er ekki gaman. Nú má ég allavega sofa og guð veit hvað ég þarfnast þess en á kvöldin er ég svo yfir mig spennt að ég næ mér ekki niður. Ég held að ég sé búin að rugla allan svefnhringinn minn því ég er varla klár á hvenær er dagur og hvenær nótt enda er hvort eða er alltaf dimmt.
Nú þarf ég greinilega að fara að komast úr bænum, í sveitasæluna, klappa kindunum og henda í þær eins og einni tuggu....


Annars kæra þakkir fyrir snilldar Árshátíð Skyn-og Rökvillufélagsins í Hvítum sokkum..

1 Comments:

At 12/12/2005 2:48 PM , Anonymous Anonymous said...

Jíha gaman var þetta! En já jólafríið er með furðulegasta móti, alltaf brjálað að gera..ég hef ekki tíma einu sinni til að borða og já þá er nú mikið sagt:) Vaknaði í morgun við það að flutningamaður var mættur á svæðið og ég þurfti bara að gjöra svo vel að hlaupa niður með honum á náttfötunum og halda á svo mikið sem heilum nýþungum sófa..sem komst svo ekki í lyftuna..og þurfti því að halda á honum uppá fjórðu hæð!!!! Sússi minn!!! Ágætis líkamsrækt í morgunsárið..svo á ég eftir að gera endalaust meira í dag..Þetta ætlar engan endi að taka!

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home