sálar fréttir

Síðust vikurnar í skólanum þessa önnina ætla ég að reyna að birta stutta pistla um samnemendur mína í Háskólanum. Ég hef einsett mér að setja saman nokkrar línur um hvern og einn þeirra yndislegu einstaklinga sem ég hef gegnið samhliða í súru og sætu síðustu misseri. Pistlarnir eru einungis settir saman til gamans og eiga ekki að vera til þess fallnir að særa neinn. Ef einhver ykkar skildi hafa mikið á móti pistla skrifum um sig frá mínum bæjardyrum, vinsamlegast látið mig vita !!!! takk Sigga
Í upphafi var orðið.....
Á sólríkum haustdegi á því ágæta ári 2003 hófu nokkrir saklausir og syndlausir einstaklingar akademískan vísindaferil sinn, í dag eru þeir ekki saklausir og syndirnar sjást langt út á Eyjafjörð. Heldur hefur fækkað í hópnum en saklausu syndaselirnir koma til með að gæða lífið litum framtíðarinnar því þau fylla flokk einvala liðs verðandi sálfræðinga, ég leyfi mér að kynna hér verðandi sálfræðinga framtíðarinnar og ágæta samnemendur mína. Með það að leiðarljósi að gera lesendum þessarar síðu kleyft að velja sér sálfræðiaðstoð við hæfi!!!
Fyrsta ber að nefna Jóu, sem hefur fengið heiðursdoktorsnafnbótina “the big mama” félagvísindadeildarinnar. Meðfram námi sínu stundar hún grimmt að afla sér sambanda á öllum vígstöðvum og er m.a. annars í tengslum við fólk í öðrum víddum. Auk þess að eiga mikil tengsl við alla sem ganga um matsal Háskólans á Sólborg. Í frístundum sínum fer hún út að reykja, en passar þó ávallt upp á að fara ekki útfyrir 300 metra radísu matstofu Háskólans. Hennar helstu kennismiðir eru róttækir atferlismeðferðarsinnar að nafni Ellis og Beck. Og má þess geta hér að sala á bjór í nafni Jóu verður senn hafinn, munu það vera styrktaraðilar hennar úr öðrum bekk í sálfræði sem standa fyrir þeirri markaðssetningu í von um að hún sýni þeim frekari linkind í umræðutímum í almennri sálfræði. Sérsvið Jóu eru á sviði drastískrar sálfræði sem hún kemur án efa til með að þróa enn frekar í náinni framtíð með framúrstefnulegum hugmyndum sínum um að “fólk sé bara einfaldlega fífl”. Jóa sést samt sjaldan örðuvísi en brosandi og ef hún er ekki brosandi þá er hún hlæjandi...
Með þessum orðum gef ég Jóu minni vænt klapp á bakið............


3 Comments:
gaman af þessu Sigga mín, hlakka til að les hvað þú hefur um mig að segja.....
já vonandi á ég ekki eftir að styggja neinn með þessu, þetta verður bara minn hreinsunareldur að færa í orð frá mínum bæjardyrum í nokkrum línum um þessa frábæru strumpa. Maður er líka að verða svolítið corý yfir því að þetta farið að taka enda allt saman!!!
já ekki get ég farið að skrifa lofræður um sjálfa mig
kv, Sigga
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home