eitthvað tröllapróf

Stjórnmálaþurs
alltaf er eitthvað sem kemur á óvart, en þetta kemur nú skemmtilega í framhaldi af málgleði minni sl. föstudagskvöld!!!!
Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.
Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.
Hvaða tröll ert þú?


4 Comments:
Eins gott að fara ekki með þér í sjoppu!!!
Jasso þú ert bara sama tröll og ég Sigga mín...jæks
Úbbs smá mistök hjá mér...fyrri færsla var sem sagt frá mér ;)
Passaði ykkur bara - ég er sko viðskiptatröllið hóhó
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home