30.11.05

Tilfinningar

Í dag ku vera rétt 24 dagar til jóla. Það er gott, mjög gott. Tilfinningaskýin eru lágt á lofti og ekki laust við að tilfinningarnar hlaupi með mann í gönur- út og suður. Við í tilfinningahlaðna hópnum erum búnar að leggja geðveika vinnu í rannsóknarskýrsluna okkar og erum vel ánægðar í dag, enda skýrslan búin. Á eiginlega bara eftir að skila herlegheitunum og hugsanlega einhverjar smávægilegar tilfæringar í orðalagi, annað ekki. Hópavinna hefur kennt mér ýmislegt og er að mörgu leiti gefandi félagsskapur; með öllu því sem fylgir. Hvort sem um er að ræða að fá annað sjónarhorn á hlutina, læra eitthvað nýtt í ritvinnslu, fara alls konar útúrdúra eða hreinlega bara aga sjálfan sig og bera virðingu fyrir öðru fólki. Einna helst kynnist maður þó sjálfum sér best, sem er gott. Líður eiginlega samt mest núna eins og ég hafi fætt barn; það er gríðarlegur léttir en sælan er engan veginn sambærileg. Tek hatt minn ofana fyrir meðþjáningarsystrum mínum í þessari fæðingu.. í dag erum við þreyttar.

25.11.05

Streitu- og félagslyndiskvarði símatsnemans

er svo upprifin yfir allskyns prófum og tölfræðiútreikningum þessa dagana að ég setti saman lítið próf sem gaman gæti verið að taka til að sjá raunverulega stöðu sína. Góða skemmtun!

Take my Quiz on QuizYourFriends.com!

kveðja SPSS fan

24.11.05

já hvað er títt...

Jæja hvað er títt, tíðin ekki sem verst og stutt í jólafrí. Er samt alveg einstaklega einmann, án vinstri eða hægri helminganna minna sem eru ekki heima í þessum töluðu orðum. Spurning um að fara að fá sér upphitað rafmagnsteppi og tvöfaldan koníak...
Hef nú samt ekki tíma til að sitja í einhverjum heimabökuðum blús því nóg er um að vera í skólanum. Ó sei sei já. Búin að eyða nánast megninu af deginum í gangasöfnun og úrvinnslu í skemmtilegri rannsókn sem ég og tvær aðrar í 78 hópnum erum að gera. Ég og SPSS tölfræðiforritið vinsæla sömdum frið eftir um það bil tveggja tíma baráttu og sammæltumst um að betra væri að fara á kostum en taugum þannig að ég hef setið stíft við skjáinn og dritað inn tölulegum staðreyndum um skráningu orðalista með hlutlausum og tilfinningahlöðunum orðum í hentugleikaúrtaki!!! Böööö
Gaman að því. Mikið hlakka ég til að komast í jólafrí, lesa allar bækurnar sem mig langar til að lesa; ég elska bækur- sem mig langar til að lesa!!!!Já ég er eiginlega pínu bókanörd því ég fer allavega eina til tvær skoðunar og forvitnisferðir í bókóbúðir fyrir jólin og er verulega lennnngii...mér finnst bara alveg einstaklega gaman að handfjatla bækur. Um jólin ætla ég að lesa Psycholgy and pain, Réttarsálfræðinginn – Gísla saga Guðjónssonar, Kalmennskan og jafnréttisuppeldið, líta í bókaröðina Vér Íslands börn og sökkva mér loksins ofan í bók sem ég keypti nýlega en hef ekki enn lesið almennilega en það er saga Simone de Beauvoir. Nauðsynlegt líka að líta í allavega eina Arnaldarbók... það eru samt miklar líkur á að ég sofni hreinlega 9.desember og vakni ekki fyrr en 9.janúar eða seinna...

22.11.05

sálar frétt 5


Það er kominn tími á því að henda hérna inn nokkrum illa liðnum orðum um næsta samnemanda minn sem ku verða nr 5 í þessari geysispennandi framhaldsþáttaseríu.

Að öllum öðrum ólöstuðum getur hlutfall talaðra orða miðað við hlutfall skilinna orða á mínútu farið algerlega úr jafnvægi þegar hún opnar munninn. Í hennar fjölskyldur gildir frumskógarlögmálið “hér talar hver fyrir sig” og í viðleitni til að bjarga sér á því heimili hefur verið fundið upp skemmtilegt málkerfi sem er svonefnt “no limit speed language” eða tungumál án hraðahindrana. Ég kynni fram á sviðið burtflytjandi nágranna minn Grétu Garbo Hááá´. Þegar á fyrsta ári markaði hún sérstöðu sýna sem hvít Yearissa á ofursnúningi og hefur haldið því æ síðan. Skemmtilegast er þegar hún tekur sér fyrir hendur hinar ýmsustu kúnstir eins og að endurraða og þrífa hátt og lágt fyrir próf eða flytja. Gréta er ekki við eina fjölina felld þar sem hún hefur mikla hæfileika á sviði flutningsálfræði sem eins og þið vitið ekki er ný tegund sálfræði sem hefur það að leiðarljósi að flytja eins oft og mikið og kostur er húsgögn og önnur viðhengi um lengri eða skemmri vegalengdir. Enda veit Gréta líka lengra en nefi sýnu nær því flutningsálfræði er náskyld heilsusálfræði þar sem eilífir tilburðir með húsgögn og búslóðir gerir fólk massað og fitt. Það er einmitt ein aðal ástæða þess að við Gréta ásamt öðrum skrýtnum gerðum frábæra rannsóknarskýrslu á öðru ári “um þörf meistaraflokks Þórs í knattspyrnu á íþróttasálfræðingi”? Þess bera að geta að styrktaraðilar þeirrar rannsóknar voru meistaraflokkur Þórs í knattspyrnu en Þórsheimilið er og verður hennar annað heimili hversu oft sem henni tekst að flytja á lífsleiðinnni. Og þar sem guttarnir í meistaraflokknum töldu þörf á íþróttasálfræðingi við við tölfræðilega martekt upp á cronbach alpha 0,05 þá hringja þeir bara í Grétu því hana vantar alltaf flutningsmenn!!

Hún Gréta mín fær klapp á bakið í dag og saknaðarkveðjur úr nágrenninu!!

p.s.´...svo allir: slaka, slaka og svo slaka....

20.11.05

eitthvað tröllapróf


Stjórnmálaþurs

alltaf er eitthvað sem kemur á óvart, en þetta kemur nú skemmtilega í framhaldi af málgleði minni sl. föstudagskvöld!!!!

Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.
Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.

Hvaða tröll ert þú?

19.11.05

...lufsa dagsins


Drita hér nokkrum línum inn frá Galakvöldinu góða sem ég skemmti mér snilldarvel á í gærkvöldi og nokkuð fram undir morgun. Snilldin er nú ekki alveg eins stórkostleg þessa stundina en ég eyði nú ekki frekara púðri í smáatriðalýsingar á þeim. Átti þó rusulegar samræður um hluti sem ég hef ekki sérfræðiþekkingu á neinn hátt í gærkvöldi : eiginlega allt milli Sjengen samkomulagsins, rökvillna og human rights. Ég er nú enginn sérstakur málaflutningsmaður og sérstaklega ekki þegar ég er upp á mitt besta, mín leynivopn fyrirfinnast frekar í rituðu máli. Það er samt alveg merkilegt hvað ég finn mikla þörf hjá mér þegar síst skildi til þess að rökræða hluti sem ég hef engan persónulega innsýn í hvort sem það er vítamín notkun eða aðstæðubundnar pælingar. Uppá síðkastið hefur þemað hjá mér líka verið stjórnmál og samsæriskenningar á alþjóðlegum grundvelli!!
Þar sem stærstu samsæriskenningarnar hjá mér þessa stundina eiga sér stað hjá timburmönnunum hérna efstu uppí sjónsvæði heilans ætla ég að fara að láta pistli þessum lokið. Þess ber þó hér að geta að í þessum skrifuðu orðum er í pásu frá stífri setu við námsbækurnar og megintilgangur þess að minnast á það er sá að: vekja athygli á því að hafa verið komin á fætur fyrir kl 9 í morgun og byrjuð að læra fyrir kl 10.

17.11.05

nr 4


Þar sem athyglissýki mín á sér enginn takmörk sett og athyglisbrestur minn gagnvart náminu þessa stundina er almennur jafnt sem víðtækur sé ég mig tilknúna að drita hér inn nokkrum línum. Annar er þetta orðin þó nokkur pressa hjá mér að standa mig í skrifum hérna blogginu að til vandræða horfir. Þar sem pressan er að verða slatta ógnvekjandi jaðrar þetta við að vera komið út í frestunaráráttu! En það er önnur og lengri saga...



Rakel verður efni næstu sögustundar. Mínum fyrstu kynnum við hana gleymi ég aldrei, því sjaldan eða aldrei hef ég séð nokkurn eiga í jafn örvæntingarfullu kreppustigi við WebCt eins og hana... það var nýnemadagana forðum daga. Hún hefur nú samt lögnu hrakið alla tölvupúka lengst út yfir Atlandshafsála og án þess að hallmæla neinum þá á hún án efa eftir að eiga stóra og stórmerkilega vísindaframtíða þó hún verði nú sjálfsagt á öðru götuhorni en á gatnamótum Húsavíkur og Kópaskers. Auk þess að vera með eindæmum samviskusöm, klár og smart á alla kanta kann hún líka ýmislegt sem er minna smart. Hún getur notað stærri lýsingarorð en aldurshnigin togarasjómaður og kallar nú ekki allt ömmu sína. Við hliðina á Rakel kemst ekkert múður og persónulega vildi ég ekki vilja lenda alvarlega upp á kant við konuna því hún kann að svara fyrir sig svo um munar. Svo má íþróttaálfurinn alvarlega fara að vara sig því hann er nú ekki eilífur og án efa myndi Rakel fylla skarð hans með miklum sóma og prýði og mun flottari brjóstum en álfurinn sjálfur getur státað af!
Hvort sem um er að ræða úrsprungna sjálfstyrkingarskilmála eða yrta reglustjórnun þá er Rakel best í því; hún virðist hreinlega lifa og nærast á því sem hefur í för með sér hegðun með skiptitöf; þ.a.e.s. hún þarf ekki að komst strax í snertingu við afleiðingarnar heldur vinnur hún af festu og öryggi að settu marki. Ég sakna hennar úr nágrenninu og hún fær bakklór dagsins frá mér....

15.11.05

sálar frétt 3

Þriðji einstaklingurinn sem ég helga pláss hérna á blogginu mínu er Dísa sem með meiru er eldhúsútsýni mitt á löngum kvöldum þegar setið við tölvuna og blaðað í bókum. Býð þess enn að tekin verði limbískur kombódans með tilþrifamikilli sveiflu þarna hinu megin. Þessi unga snót hefur að mestu leiti að mér skilst alið óttann í borg óttans; Reykjarvík. Önnur praktísk atriði sem ég veit um hana Dísu mína eru þau að þegar hún fæddist leið yfir ljósmóðurina því aldrei fyrr hafðu hún augum litið svo fagurt og frítt meybarn með ölfant í vinstri hendi og naflastrenginn vafinn utan um Handbók djammarans, það fyrsta sem þetta undurfagra meybarn gerði var að ropa og syngja hástöfun: ....”de var brendavæne i flasken da jeg kom”.....Handók djammarans hefur reynst gott vegarnesti á lífsins leið Dísunnar því eins og Geirmundur sveiflukóngur Skagafjarðar komst að á svipuðum tíma og Dísa leit dagsins ljós var að ...nú er ég léttur, orðinn nokkuð nettur, er í ofsastuði og elska alla menn... hann Geirmundur þyrfti nú að hafa djammstílista eins og hana Dísu okkar. Bókin góða er litla biblía Dísunnar sem hún hefur æ síðan gert að leiðsögn í sínu lífi. Enda megum við sem þekkjum Dísu vera þakklát því að stelpan er náttúrulega bara snillingur í orði sem upp á borði eða hverjum myndi detta í huga að vinna sprellmótið á síðust metrunum með kvenlegu innsæi sínu; engum nema Dísu tekst allavega svoleiðis!!
Enda daman eðaldama sem án efa á eftir að standa sig vel á sínu sérsviði sálfræðinnar sem hefur reyndar lítið verið kynnt hingað til enda eru hliðaráhrif djamms betur þekkt sem vandamálahegðun en ekki listgrein. En Dísu tekst allt og hún fær því klapp dagsins frá mér í dag.....

13.11.05

sálar fréttir nr 2


Annar í röðinni hér fær að vera annar af tveimur karlkyns samnemendum mínum í sálfræði. Af öllum öðrum tók ég þennan mann fyrst tali þessa fyrstu vísindadaga mína í Háskólanum. Þessi ágæti maður ku hafa fengið nafnið Tryggvi snemma á sinni æfi og haldið því óslitið síðan. Þó svo ég þekki ekki innstu skúmaskot Tryggva nema af mínu sérstæða innsæi í persónuleika fólks þá get ég sagt ykkur að honum finnst gott að sofa og helst þegar geislar sólarinnar þröngva sér inn um gluggatjöldin eða snúa sér yfir á hina hliðina og kúra lengur hjá henni Sólveigu sinni. Það er orsakasamband þar á milli og þess að hann Tryggvi spilar playstation leiki lengi nætur. Hins vegar gefur það okkur hinum ekki góða sögu sem mætum meira en hann í skólann að alltaf er hann að brillera í öllum fögum og það þrátt fyrir að hann segi að sinni alkunnu hógværð og líbóisma “ég var ekkert búinn að lesa neitt mikið” eða “róleg” ef einhver óþarfa æsingur að hans mati er í gangi í röðum meirihluta kvenkyns samnemenda hans. Tryggvi hefur boðið mér að horfa á fótboltaleik með sér einhvern tímann í framtíðinni og vona ég að hann standi við orð sín en hann ku vera mikill keppnis og áhanganda sinni. Til að gera langa sögu stutta þá vil ég minna á að keppnismaðurinn Tryggvi hreppti klínsku sáfræðingaverðlaunin fyrr á þessu ári en þeim verlaunum fylgja miklir möguleikar og heillaóskir til framtíðar. Tryggvi leitar aldrei langt yfir skammt og því kaus hann sér kvonfang innan sálfræðinnar og getum við ímyndað okkur hvernig heimilislífið gengur fyrir sig þar: vakna eða ekki vakna, gefa rottunni í Skinnerbúrinu að borða, sofa eða ekki sofa, STRYKJA sambandið, framkalla hegðunina að fara á fætur, styrkja hegðunina að fara í skólann, beita hugrænni atferlismeðferð á makann, láta Skinnerdúfuna ýta á takka, nota umbun í uppþvottinum.....

Æ jæja, svona er þeir aumkunarverðir sem skrifa um líf annarra, Tryggvi ef ég hefði verið alvöru karlmaður hefði ég vilja vera 1/3 eins og þú...
Í dag færð þú klapp á bakið frá mér.......

12.11.05

sálar fréttir


Síðust vikurnar í skólanum þessa önnina ætla ég að reyna að birta stutta pistla um samnemendur mína í Háskólanum. Ég hef einsett mér að setja saman nokkrar línur um hvern og einn þeirra yndislegu einstaklinga sem ég hef gegnið samhliða í súru og sætu síðustu misseri. Pistlarnir eru einungis settir saman til gamans og eiga ekki að vera til þess fallnir að særa neinn. Ef einhver ykkar skildi hafa mikið á móti pistla skrifum um sig frá mínum bæjardyrum, vinsamlegast látið mig vita !!!! takk Sigga

Í upphafi var orðið.....
Á sólríkum haustdegi á því ágæta ári 2003 hófu nokkrir saklausir og syndlausir einstaklingar akademískan vísindaferil sinn, í dag eru þeir ekki saklausir og syndirnar sjást langt út á Eyjafjörð. Heldur hefur fækkað í hópnum en saklausu syndaselirnir koma til með að gæða lífið litum framtíðarinnar því þau fylla flokk einvala liðs verðandi sálfræðinga, ég leyfi mér að kynna hér verðandi sálfræðinga framtíðarinnar og ágæta samnemendur mína. Með það að leiðarljósi að gera lesendum þessarar síðu kleyft að velja sér sálfræðiaðstoð við hæfi!!!


Fyrsta ber að nefna Jóu, sem hefur fengið heiðursdoktorsnafnbótina “the big mama” félagvísindadeildarinnar. Meðfram námi sínu stundar hún grimmt að afla sér sambanda á öllum vígstöðvum og er m.a. annars í tengslum við fólk í öðrum víddum. Auk þess að eiga mikil tengsl við alla sem ganga um matsal Háskólans á Sólborg. Í frístundum sínum fer hún út að reykja, en passar þó ávallt upp á að fara ekki útfyrir 300 metra radísu matstofu Háskólans. Hennar helstu kennismiðir eru róttækir atferlismeðferðarsinnar að nafni Ellis og Beck. Og má þess geta hér að sala á bjór í nafni Jóu verður senn hafinn, munu það vera styrktaraðilar hennar úr öðrum bekk í sálfræði sem standa fyrir þeirri markaðssetningu í von um að hún sýni þeim frekari linkind í umræðutímum í almennri sálfræði. Sérsvið Jóu eru á sviði drastískrar sálfræði sem hún kemur án efa til með að þróa enn frekar í náinni framtíð með framúrstefnulegum hugmyndum sínum um að “fólk sé bara einfaldlega fífl”. Jóa sést samt sjaldan örðuvísi en brosandi og ef hún er ekki brosandi þá er hún hlæjandi...


Með þessum orðum gef ég Jóu minni vænt klapp á bakið............

3.11.05

væl

Hej,
Veit ekki alveg hversu gáfulegt er að blogga þessa stundina þar sem vindar neikvæðni og sjálfspirrings eru ríkjandi hérna í mínu nánasta umhverfi. Sennilegast er orsakasamband milli þess og streittra aðstæðna í skólanum. Fólk er farið að verða þreytt enda liðið vel inn í önnina og samt er brjálæðisleg vinna eftir. Fyrir sjálfa mig gerir nöldur lítið nema kannski létta á þanþoli lundarinnar. Í staðinn fyrir að nöldra í pistli dagsins út í eitt, ætla ég að skrifa nokkrar fullyrðingar um hvað ég MYNDI vilja vera að gera þessa stundina annað en hamast í að lesa endalausa hauga af rannsóknum, gera löng og stutt verkefni, lesa fyrir próf, lesa fyrir næsta próf, gera tvær stórar ritgerðir, halda fyrirlestur..........
1) Leika mér og fíflast með strákunum mínum
2) leika mér úti í snjónum
3) fara í Jólahúsið
4) mála piparkökur
5) fara í sund
6) fara á skíði
7) velja sjálf hvað ég les !!!!!
8) sofa

Góðar stundir