25.10.05

...vellíðan dagsins


Mér líður alveg afskaplega vel í dag. Eiginlega svo vel að ég sé mér ekki annað fært en að gera það að upphafsorðum mínum í bloggpistli dagsins. Dagurinn í dag og góður fyrir margar skakir. Það er fallegt veður úti, styttist í jólafríið, þriðjudagar eru yfirleitt betri en mánudagar, og síðast en ekki síst er afmælisdagur annars af tveimur afkvæma minna. Já hann er þriggja ára í dag þessi elska. Í tilefni þess ætla ég að helga honum nokkrar línur hér í tilefni dagsins. Fyrir nákvæmlega þremur árum fæddist hann blessaður, eldsnemma um morgun og það var eins og ég hefði alltaf átt hann. Hann fæddist á fjórum tímum og ég var kominn með hann heim um kaffileytið sama dag. Síðan hefur strengurinn milli okkar þést í gegnum súrt og sætt og í dag er hann orðinn eins “sjálfstæður” og aldur hann leyfir, hann nærist á fíflagangi og bröndurum. Íþróttaálfurinn og Bósi ljósár eru miklar hetjur í hans augum og hann tekur fyrir ýmsa furðulega frasa og notar þá í tíma og ótíma. Núna er það “kúlevjúúu” og hann þykist fljúga um íbúðina, svo er hann alltaf að leika sér með ímyndaðan fugl sem í rauninni er orðinn að fuglafjölskyldu. Fuglarnir geta meira að segja keyrt traktor. Með prakkaralegu brosi og vænu knúsi getur drengurinn brætt mömmu sína og stundum hringsnúið henni all mikið í kringum sig. Um daginn átti hann að klæða sig í skóna sína og settist óþolinmóður á gólfið og sagði “mamma, e get ekkki” , “jú, jú víst geturðu” sagði mamman. Þögn. “mamma e ekkka tig, egg ætta kúsa tig fast” kemur og knúsar mömmuna og heldur á skónum og réttir mömmunni, þau knúsast og mamman klæðir drenginn þegjandi og hljóðalaust í skólana, í sæluvímu yfir að eiga svona elskulegt barna sem tjái sig svona hispurslaust um ást sína á mömmu sinni!Já svo mörg voru þau orð. Þessi mamma er ótrúlega heppin að eiga svona yndislegt barn, og ekki eitt heldur tvö svona einstök þó ólík séu. Í dag líður mér afskaplega vel, því ég er lánsöm mamma.....

2 Comments:

At 10/25/2005 5:34 PM , Anonymous Anonymous said...

til hamingju með drenginn darling, get ekki beðið eftir að koma í kvöld að bragða á kræsingunum eða ætti ég að segja afgöngum en það er víst nógu gott fyrir frænkur heheheh

 
At 10/25/2005 5:51 PM , Anonymous Anonymous said...

Inilega til hamingju með duglega drenginn þinn og vonandi skemmtið þið ykkur vel í dag. Segðu svo veislugestunum að borða ekkert allt of mikið svo að ég Alma fáum nú eitthvað líka.......
Sjáumst í kvöld í atferlisumræðunum
Kv. Berglind

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home