kornið sem fyllir mælirinn....
Fékk þetta sent í tölvupósti um téð NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!
læt ykkur um álit á þessu
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu.
KLÓSETTRÚLLUR: VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM? Hringborðsumræður.
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI-Æfingar með körfuefni (teikningar og módel).
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?Pallborðsumræður; nokkrir sérfræðingar.
LÆRA AÐ FINNA HLUTI-Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi -Opin umræða.
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM-PowerPoint kynning.
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST-Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar.
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?Ökuhermir.
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA-Fyrirlestur og hlutverkaleikir.
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR-Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR-Komdu með dagatalið þitt í tímann.
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR- Einstaklingsráðgjöf og samtöl
Já það er nú allt til á þessum síðustu og verstu tímum, ætla ekkert að fjölyrða um það meir...


2 Comments:
Það vantar ekki vinsældirnar hjá þér Sigga!
Þetta blogg þitt er orðið ansi alþjóðavætt!
Rætt um club music lyrics, disney world og highway construction delay... Það er víst vissara að fylgjast með umræðunni hér svo að maður sé inn í því sem er að gerast...
já, heldurðu bara globaliseringin tröllríður hér öllu eins og annarstaðar.... annars sakna þér þín úr skólanum og vona að þú farir að stíga upp af sjúkrabeðinu, þú færð mínar hlýjustu alþjóðaheilbrigðishugsanir...
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home