...dagurinn í dag!!

Ég er með hnút í maganum í dag. Hélt að það væri stresshnútur fyrir prófið á morgun eða eftir afmæliskökuát gærdagsins sem svona ykkur að segja tókst allt saman prýðisvel og synirnir voru mjög þreyttir í gærkvöldi!!!
Hnúturinn er eiginlega bara eins og stór köggull, svona harður sem framkallar sting í hjartanu. Í dag eru liðin 10 ár frá snjóflóðinu á Flateyri og umfjöllun um það í fjölmiðlum. Ég missti sjálf nákomin ættingja í snjóflóði fyrir tæpur tveimur árum og þessi dagur er mér áminning um þá erfiðu reynslu. Ég get sett mig að einhverju leiti í spor þeirra sem á þessum degi horfa með sorg og eftirsjá til ættingja og vina sinna. En í dag ætla ég að minnast frænda míns sem fórst fyrir tæpum tveimur árum með þakklæti í hjartanu. Hann frændi minn tók einn dag í einu og hugtakið stress eða fyrirferð var ekki til á lífslistanum hans. Í dag er ég þakklát fyrir að hafa gengið samferða honum um tíma í lífi mínu, þakklát fyrir að eiga minningarnar um hann og þakklát fyrir að staldra við, hugsa til baka og taka einn dag í einu...............
Í dag.
Dagurinn í dag er dagurinn þinn.
Þú getur gert við hann
hvað sem þú vilt
Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt
En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar
Svo einhver finni í kvöld að það er gott að þú ert til
A rosenbladt.


0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home