4.9.05

Strúnudagur

Hef átt ansi rólegan dag. Svo rólegan að ég man varla eftir öðru eins. Það er nú kannski eins gott því það verða lítil rólegheit næstu vikurnar ef marka má kennsluáætlanir kennaranna minna. Annars eru þetta samt áhugaverðir áfangar sem ég er í, svona allavega ef eitthvað er að marka svoleiðis eftir fyrstu skólavikuna. 5 einingar í Rannasóknaraðferðum í sálfræði, 5 einingar í Sérefni hugar og heila, 3 í Greiningu og mótun hegðunar og 2 í Þróunarsálfræði II. Semsagt verður heilinn á mér orðin vel viðbrunnin þegar kemur að langþráðu jólafrí sem verður vonandi með fyrra fallinu í desember. Þar fyrir utan eru blikur á lofti með að B.A verkefninu mínu verði startað á allra næstu vikum, jú trúið þið því kellan mun sennilega útskrifast næsta vor!! Mesti höfuðverkurinn er samt hvað verður eftir það? Háleitar hugmyndir eru þó uppi á framtíðarborðinu sem ég kasta ekki rafrænt út í loftið að svo stöddu.
Dagurinn í dag er samt hinn mesti yndælisdagur því í dag er Strúna systir mín árinu eldri en í gær. Sendi henni mínar bestu afmælisóskir til heimsborgar Rómarveldis þar sem hún hefur vonandi átt góðan dag. Annars er Strúnan ein yndislegasta kona sem ég þekki . Við höfum nú ekki alltaf verið neinir perluvinir en höfum náð tilfinningalegum þroska til að taka hvor annarri eins og við erum. Þannig að þessi dagur er Strúnudagur hjá mér!

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home