22.9.05

Kvöldfréttir les:


Jamm til að segja eitthvað af mínum dögum þessa dagana; (getur maður annars sagt svona?). Þá einkennast þeir af spenningi yfir Danmerkurreisunni, kvíða yfir Danmerkurreisunni og streitu yfir Danmerkurreisunni. Er að reyna að halda mér á jörðinni og koma af þeim verkefnum sem ég þarf að klára áður en ég fer, en listinn er að verða kílómeterslangur! Er búin að hætta við og svo hætta við að hætta við og svona fram og til baka...Þegar ég ætla að byrja að læra veit ég varla hvar ég á að byrja, því þetta er einhvern veginn svo over my head en ætti náttúrulega að vera in my head! Þegar ég er ekki að læra sjálf er ég að læra með 6 ára syni mínum! Yngri guttinn hefur líka alveg látið finna fyrir sér og er heldur afbrýðissamur. Hann kom hreinlega með bækurnar sínar og henti þeim í mig í dag til að fá mig til að lesa fyrir sig. Í dag þegar ég var búin að segja óhóflega mikið “bíddu aðeins, elskan”! þá opnaði vinurinn hnífaparaskúffuna og fór að týna uppúr henni og henda á gólfið. Annað vinsælt er að fara inn á bað og sulla hressilega í baðvaskinum! Semsagt gera eitthvað sem vekur athygli, jákvætt eða neikvætt-bara að það sé athygli. Það er ein af aðalástæðunum fyrir því hversu mikið maður elskar börnin sín, þau eru yndisleg eins og þau eru, en yndislegust þegar þau sofa!

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home