29.8.05

Þrasið er hafið aftur


Jæja þá er ég komin í netheimana aftur og ætla að þrasa og rausa eins og ég er löng til! Hef nú nýlega kvatt læknavísindin, semsagt sumarið búið og þar með sumarvinna og tek ég því hér eftir upp félagvísindalegar nálganir á nýjan leik!
Með bros á vör og tár á kinn segi ég ykkur söguna af kveðjukökunni sem ég lagði drög að á fimmtudagskvöldið sem varla væri í frásögur færandi nema af því allt gekk bókstaflega á báðum afturfótunum! Eftir að hafa slegið út rafmagninu í annað skiptið hugsaði ég nú með mér að það yrði að hafa það þó köku......inn yrði hrá suðsuðvestur af vinstra horninu hægra megin til hliðar við hinn endann. Þegar kakan leit út fyrir að vera sómasamleg svona utanfrá allavega kom upp nýtt vandamál þar sem ísskápurinn var ekki nothæfur til þess að kæla kökuna upphófst mikil verkfræðivinna í þoku, kulda, myrkri og ógeðslegri rigningu við að klambra saman skýli fyrir kökuna á svölunum hjá mér. Skýlið samanstóð í lokin af leikfangakassa úr plasti, svörtum ruslapoka, litlu borði, öðrum poka og til að tryggja að ekkert færi nú af stað var sett þar kyrfilega ofan á málmhringur sem annars er kertastaki undir útikerti. Til að kóróna nú allt saman var ég um morguninn næstum fokin með herlegheitin, svo kökulufsan leit að lokum út eins og rokveðrað abstraktverk á hraðleið út af kökudiskunum! Þannig að kakan fær greininguna : Kransæðaherpingur með kvíðastilltu ívafi NOS JAMM Z26.8

Þess má geta að lokum að enginn hefur kvartað eða látið lífið eftir að hafa bragðað kökulufsuna

1 Comments:

At 8/29/2005 6:03 PM , Anonymous Anonymous said...

þras, þras, virkar þetta

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home