Monsúntíminn
...nú er monsúntíminn hafinn á Akureyri. Sá tími einkennist hér af rigningu og aftur rigningu. Einnig verður stórhættulegt að ferðast fótgangandi því sumir akandi vegfarendur gera sér það held ég til skemmtunar að skvetta og frussa yfir fótfætlinga. Buxnaskálmar eru blautar, það þarf rúðuþurrkur á gleraugu, sumir eru reyndar svo forsjálir að draga upp úr pússi sínu til þess gerðar regnhlífar. Oftar en ekki eru það útlendingar. Einu sinni hélt ég að Guð væri að vökva blómin sín en sá tími er löngu liðinn. Nú er tími veðurfrétta. Annars sagðist einn vinur minn í dag ekki skilja veðurfréttir og nefni "slydda á annesjum" , "súld á stök stað" máli sínu til stuðnings. Hvar er annars "væta hér og hvar"? Ég fór að huga aðeins um þetta og hef svo sem lítið pælt í þessu þannig, en í sveitnni eru veðurspáin á RÚV nánast mikilvægari en fréttirnar. Það að "taka veðrið" var mikið ábyrgðarstarf því það hafið lykiláhrif á hvað yrði unnið þann daginn. Til að taka þetta málefni "veðrið" á sálfræðinni er vert að íhuga að veður hefur áhrif á hvernig okkur líður? allavega finnst mér það, sendi ykkur því blautar og blúsaðar kveðjur úr monúnrigningunni á AK.


0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home