8.6.07

stuttar örfréttir



1. er flutt

2. flyt aftur eftir 2 1/2 mánuð

3. er að fara í sumarfrí eftir næstu viku

4. á eins árs útskriftarafmæli í næstu viku

5. er að verða gömul

6. er búin að gleyma hvernig á að hössla

7. lærði það hvort eða er aldrei

8. er snillingur í að velja mér "menn" án framtíðar

9. er félagslegt viðrini

10. á leið í mastersnám í haust


blessó

4.1.07

fokkks


Bið ástkæra og trygga lesendur mínar innilegrar afsökunnar á bloggleysi síðustu mánuða um leið og ég óska ykkur öllum gæfuríks árs og friðar á nýju ári, eða eins og einu sinni var sagt skál!

Nýjar hvatvísilegar hugsanir og samsæri verða uppfærð hér um leið og þær frissast út úr hugarfylgsnum mínum.....

Er heimurinn raunverulegur eða er raunveruleikinn heimur? kannski er hann bara fullur af timbruðum músum á flugi með upplitað jólasskraut og rauða nefið hans Rúdolfs á 50% afslætti eftir jólasláturtíðina.

1.10.06

vitleysa....


Bið lesendur mína afsökunar á bloggleysinu og hef svosem enga tæmandi afsökun fyrir því nema hugsanlega frásagnarþurrð og fyrirtíðaspennu. Það teljast mögulega gildar afsakanir þó deila megi um hversu réttmætar þær séu.

Úr einkalífinu er fátt krassandi frásagna; hef hvorki skipt um kynhneigð né fengið mér hjásvæfu en hvorutveggja hefur verið ámálgað við mig í orði síðan ég bloggaði síðast. Ég tók þetta að sjálfsögðu til mín og hef ígrundað vel þessar athugasemdir en tel mig að svo stöddu ekki þurfa að gera neitt frekar grein fyrir þeim. Hinsvegar viðurkenni ég að hafa þó nokkuð oft tvíkynhneigðar skoðanir sem ég hef áður reifað á þessari síðu. Engu að síður þakka ég umhyggjusemi fyrir mínum meinta “samlífisskorti” og segi einfaldlega mænd your own bisnesss...


Haustið hefur alltaf verið fyrir mér ákveðinn endurskoðunartími- þá fer maður yfir stöðuna, metur einhverja kosti og gerir einhver plön um framhaldið. Síðustu misseri hefur það að nokkru leiti verið samofið náminu mínu og þá verið skilmerkilega uppsett hvenær næsta próf, ritgerð eða verkefnaskil væru framundan. Núna þetta haustið hefur það ekki tekist og þrátt fyrir að ætla mér að leggja stund á þrjá áfanga hef ég ekki getað komist í gírinn ennþá. Er semsagt alveg óheyrilega kærulaus og hrokafull hvað varðar námsþáttinn.

Vinnan mín er sem aldrei fyrr full af forvitnilegum uppákomum og ýmsum mannlegum snertiflötum sem gaman væri að tíunda í skrifuðu máli. Hinsvegar er það ekki gerlegt.
Til þess að draga saman líðan mína þessa dagana verða því nokkur stikkorð að nægja...
Mér líður eins og :
• Flæktu jólaskrauti
• Hvítvínsflösku án hvítvíns
• Klístruðum ís á jakkafötum
• Dagblaðinu frá því í gær
• Óhollu nammi...


í guðs friði, Sigga

30.8.06

eitt og tvennt

1) Uppskera í gömlu kartöflugörðunum í Þykkvabæ er með besta móti þetta árið, handhafar forsetavalds ku dreifa yfir garðana "uppreisn æru" og stór kartöflubóndinn og sjarmatröllið Árni Byko stefnir til Alþingis á ný!

2) Fangavörður í sumarafleysingum er laus úr gæsluvarðhaldi! sat hann einhvern tímann inni eða var hann í vinnunni? Selfosslögreglan segir málið upplýst. Fangavörðurinn fær í laun tvo kíló af hassi.

3) Aumingjans íslendingurinn sem situr í fangelsi í Bra"hass"elínu! en ég vorkenni honum ekki sjett...

4) socialinn er ekki í tísku

5) ...og ég er græn gúrka.

17.8.06

upposí...

Fruss, ekki er öll vitleysan eins. Ó sei sei nei, enn koma “trúarleiðtogar” í sjónvarpsviðtöl og vitna í sálfræðinga og sálfræðimeðferðir sem “vinni á samkynhneigð” og snúi fólki frá villu vegar. Mig langar að gubba þegar ég heyri fólk með engar röksemdarfærslur skýla sér og vitna í einhverjar krappý rannsóknir sem aldrei kemur neitt fleira fram um.

Ameríkuhreppur fer á límingunum vegna þess að einhver farþegi í flugi fékk ofsahræðslukast og var auk þess vopnaður handáburði. Útkoman varð sú að orrustuflugvélar voru sendar til fylgdar meintum “terroristum” til næsta lendingarstaðar.
Já eins gott að þessi flugfarþegi var svo upptekinn í ofsahræðslukastinu að hann komst ekki í að bera á sig handáburðinn. Þá hefði flugvélin ábyggilega verið skotin niður með manni og mús. JÁ paranójan hjá Bússa frænda er farin að verða nokkuð áráttu-og þráhyggjukennd...

Akureyri var snúið á hvolf um Versló. Persónulega hef ég aldrei verið neitt sérstaklega mikið um allan þennan Verslunarmannahelgar tremma sem einkennist venjulegast af gróðagræðgi einhverra hagsmunaðila og taumlausri sölu á einhverju drasli sem “þarf að notast þessa helgina”. Auk þess hef ég aldrei skilið þessa hvöt að því að þurfa að smala öllum á einhverja staði til að stefna saman uppskrift af veseni þegar fólk er í misjöfnu ástandi og blanda þessu við fjölskylduskemmtun. Hnuss, en þetta líður eins og allt annað og alla jafna hef ég látið mig hverfa úr bænum þessa umræddu helgi. Það var hinsvegar undantekning á því núna- og lét ég m.a. og féll ég m.a. í hendur markaðshyggjunnar þegar ég lét tilleiðast og fór með strákana mína í tívolí hér í miðbænum.

Eftir helgina fór ég svo í langþráð sumarorlof sem var nú ekki nema eina og hálf vika. En að er hins vegar heilmikið sálrænt að geta sagst hafa verið í sumarfrí. Það var ljúft á alla kanta. Lagði land undir fót með guttana með fullan bíl að viðlegubúnaði og ýmsum búnaði til að bregðast við öllum hugsanlegum uppakomum eða aðsteðjandi vanda!!!

Tjaldútilegan endist nú reyndar bara eina nótt; en við ferðuðumst heilmikið um; keyrðum Þverárfjallið og fórum þar í stutta göngu, komum við á Skagaströnd og í fjöruferð á Blönduósi, gistum svo í tjaldi á Laugarbakka. Þar grillum við silung, spilum fótbolta, drullumöllum, fórum í heitan pott og lásum þjóðsögur. Næsta dag fórum við á Borðeyri og skoðum okkur aðeins um þar, Laxárdalsheiðin var tekin með trompi, komið við í Búðardal. Gaurarnir sváfu í Hvammsfirðinum og mikið var verðrið fallegt og fjöllin tilkomumikil þegar við fórum svo inn Álftafjörðinn og á honum sigldu náttúrulega fullt af álftum. Síðan gistum við í Stykkishólmi hjá frændfólki. Þar komust þeir bræður í feitt því þar var til allskonar “stórt strákadót” sbr. fjárstýrðir bensínbílar og allskonar smádót og bílar. Eftir að hafa tekið út staðinn keyrðum við Vatnaleið og Mýrarnar í algeru slagveðri í Borgarnes. Sem betur fer sofnuðu þeir og vöknuðu ekki fyrr en við vorum komin upp úr Hvalfjarðargöngunum.

Jæja svo eyddum við þremur dögum í RVK. Fórum úr að borða með Strúnunni okkar og hittum líka litlu syss, vorum hjá góðum vinum og fórum í heimsóknir, Húsdýragarðinn, Laugardagslaugina, Kringluna, Ævintýralandið, IKEA.....já semsagt vorum við töluvert á ferðinni í RVK, eyddi líka heldur miklum peningum en það stóð yfir “nauðsynleg endurnýjun á mörgum hlutum”!

Komumst samt ekki í Gleðigönguna (Gay Præd), ég hefði nú mögulega týnd öðrum hvorum guttanum svo ég lagði ekki í það að þessu sinni.

Nú lá leiðin austur fyrir fjallið og fyrir neðan Hveragerði á beinum vegarkafla lentum við í leiðina atviki. Þetta var nú eiginlega í alla staði mjög undarlegt; ég er að keyra í bílaröð og auk þess var töluverð bílaröð sem kom úr gagnstæðri átt. Kemur ekki bíll allt í einu ótæpilega inn á minn vegarhelming ; speglarnir splassast saman og krass. Minn spegill fer af og lakkið á bílstjóra hurðinni er nokkuð krafsað. Bíllinn á eftir mér fékk minn spegil á húddið á sér og sölluð brotin úr speglinum dreifðust þar yfir og upp á toppinn. Ó boy það var ekki fögur sjón. Svo kom gaurinn sem keyrði á mig (hann bara sveigði inn á minn vegarhelming!) og þá var spegilinn hjá honum af og rúðan brotin. Löggan á Selfossi kom svo eftir nokkurn tíma og allir voru látnir blása og sonna – en allavega viðgerðin á mínum bíl og bílnum fyrir aftan er tryggingarmál. Það liggur fyrir að gaurinn olli þessu....

Ömurlegt að lenda í svona, þetta hefði að sjálfsögðu geta farið mjög illa og guð hvað ég hrósa happi fyrir mig og börnin mín svona eftir á – skítt með fjandans spegilinn og lakkið.

Gistum eina nótt á Selfossi í góðu yfirlæti og brunuðum svo heim daginn eftir. Mikið var ég lúin eftir þessa keyrslu og alveg rosalega fegin að vera kominn heim í litla heiminn minn hér á Akureyri....

Svo er rútínan svona smá saman að komast í sínar skorður....

Bæjó spæjó í bilið....

2.8.06

...nýjasta nýtt

Var búin að gera skelfilega djúpa og tilþrifamikla færslu sem ekki seifaðist- skrambans; svo hér kemur stutt útgáfa! Dagarnir frussast áfram og kósýheitin eru algerlega yfirnáttúruleg þegar forsvaranleg birtuskilyrði skapast fyrir kertaljós og rökkvaða birtu á kvöldin. Ekki skemmir fallegt sólarlag fyrir og líflegur félagskapur. Er búin að upplifa ófáar gæðastundirnar síðustu vikurnar. Ég hef hlúkast að Súlutindum, sýnt fádæma tilþrif í stafgöngu, matarboð, kaffihúsaferðir, ærlegt spjall fram eftir nóttu, spilamennska svo fátt eitt sé nefnt. Best við þetta allt saman er náttúrulega að eiga góða vini. Lífið væri ósköp fátæklegt án góðra vina. Nú styttist í að ormarnir komi aftur heim og mikið verður nú ljúft að knúsast með þeim, vakna upp við það að einhver sparkar óvart í mann á nóttunni eða vakna að morgni í kuðli á rúmbrýkinni! Eða takast á við síðdegissuð, þriðjudagsþreytu eða fjögurra ára frekju! Já fjarlægin gerir fjöllin blá.

10.7.06

kveðja




enn er hjarta mitt tregaþungt; Sigrún mín- óskiljanlegt að líf þitt skuli ekki hafa orðið lengra en þetta, þú átt eitt bjartasta og geislandi bros sem ég hef nokkurn tímann séð.





Kæra vina

Þei, þei og ró
þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó
sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg,
værðar þú njóta skalt.
Þei, þei og ró
þögn breiðist yfir allt.

enn uppdeit

Sælt veri fólkið, héðan af bæ er harla fátt í fréttum. Ég eyði mínum tíma mest í vinnunni og reyni að hafa eins mikið að gera og mér er framast kostur. Þar sem ég má ekkert segja þaðan þá er það eiginlega borðleggjandi að ég hef fátt að segja. Úr einkalífinu er fátt um fína drætti. Nema það var jú dregin úr mér barnatönn í vikunni! Hafið þið heyrt annað eins og það sem er enn betra – það kemur enginn fullorðinstönn. Ég þarf því mögulega að eyða einhverjum þúsundköllum í fullorðinstönn. Hef sofið mikið um helgina, horft á videó og eitthvað reynt að hreyfa skrokkinn. Á þriðjudag verður væntanlega brunað í sveitina á fjölskyldusamkomu. Náttborið þessa dagana er þakið lesefni um allt milli fátækrar á Íslandi,vímuefnafíknar og dulmála í Íslandssögunni. Afar skemmtilegur kokteill ásamt einni svona ofurkonubók sem heitir Móðir í hjáverkum. Ágætis lesning um súpermömmur út í hinum stóra heimi verðbréfa og vístölu. Annars alveg makalaust merkilegt hvað vísitölur, vertryggingar, lánasúpur og Intrum miðar, ásamt endalausum útreikningum á sjúkradagpeningum og allskonar lífeyri getur fyllt daginn miklum eldmóði. Ég get nú sennilega seint talist einhver töluspekingur en mín fjármál hafa öðlast allt aðrar hæðir eftir að ég byrjaði í vinnunni minni auk þess sem hor í nös og síðdegisfrekja hafa núna annan samhljóm í sálartetrinu á mér....

Yfir og út...